Góð ráð fyrir umsækjendur < Origo

Atvinnutækifæri

Góð ráð fyrir umsækjendur

Við bjóðum góð ráð fyrir umsækjendur um hvernig best sé að gera ferilskrá og hvernig megi undirbúa sig fyrir starfsviðtalið.

Mestu máli skiptir að gera vandaða og skýra ferilskrá

  • Við mælum með að þú hafir starfsreynslu/menntun í tímaröð og að hafa nýjasta efst
  • Passaðu vel uppá að allar dagsetningar séu réttar
  • Hvaða störf hefur þú unnið og setja inn stutta starfslýsingu fyrir hvert starf
  • Gott er að hafa mynd í ferilskránni, þó ekki nauðsynlegt
  • Leggðu áherslu á styrkleika þína og hæfni svo sem tölvuþekkingu, tungumál og fleira sem nýtist í því starfi sem sótt er um
  • Tilgreindu umsagnaraðila og hvort hafa megi samband við þá eða láta þig vita áður.
  • Mjög mikilvægt er að fá einhvern til að lesa yfir ferilskrána þína til að fá álit og eins fara yfir stafsetningu
  • Þegar þú hefur sett upp ferilskrá í Word er betra að vista hana sem pdf skjal eða setja hana upp eftir tilbúnu sniðmáti t.d. inni á canva.com

 

Hvernig undirbý ég mig fyrir starfsviðtal?

  • Mættu tímanlega
  • Vertu búin/n að kynna þér fyrirtækið t.d. á heimasíðunni
  • Vertu með hæfniskröfur og helstu verkefni starfsins á hreinu og vertu undirbúin/n fyrir þær spurningar sem því tengjast
  • Taktu þétt í hönd þess sem tekur á móti þér (ekki kreista)
  • Horfðu á viðmælandann þegar þú talar
  • Ekki vera með tyggjó, mat eða drykk með þér
  • Snyrtilegur klæðnaður og hreinlæti er vel við hæfi
  • Bros og jákvætt viðmót er gott veganesti inn í starfsviðtal

Gangi þér vel!