Lisa Seacat DeLuca - Einn áhrifamesti frumkvöðull IBM

 

Lisa Seacat DeLuca - Einn áhrifamesti frumkvöðull IBM

Lisa Seacat DeLuca (Distinguished Engineer hjá IBM Watson Internet of Things) einn áhrifamesti kvenfrumkvöðulll í sögu IBM, segir lykilatriði að kynna fólki fyrir upplýsingatækni snemma á lífsleiðinni til þess að tryggja aukinn kynjajöfnuð í greininni. Hún segir einnig mikilvægt að bæði kynin eigi kost á fæðingar- og foreldraorlofi.

Lisa, sem var gestur Origo á UTmessunni, segir að leyfa eigi börnum að kynnast tækninni og gera þeim kleift að finna sína leið.

Þá segir hún um stöðu kvenna í upplýsingatækni: „Ef ég væri að reka fyrirtæki mundi ég hafa skýra stefnu gagnvart konum sem eru að eiga börn. Það verður rof í vinnu hjá mörgum í kjölfar þess að eiga barn og sumar konur koma ekki aftur."

Hún segir að fæðingarorlof sé afar mikilvægur þáttur í jafnrétti á vinnumarkaði. „Karlar þurfa að geta verið heima og stutt konurnar sínar svo þær upplifi sig ekki einar og treysti sér til að fara vinna aftur.“

 

 

Fleiri myndbönd