Stjórn og stjórnarhættir
Stjórn Origo samanstendur af sex einstaklingum, en stjórnin fylgir leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar voru út af Viðskiptaráði Íslands, OMX Kauphöll Íslands og Samtökum atvinnulífsins.
Stjórn Origo samanstendur af sex einstaklingum, en stjórnin fylgir leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar voru út af Viðskiptaráði Íslands, OMX Kauphöll Íslands og Samtökum atvinnulífsins.
Hjalti Þórarinsson tók sæti varamanns í stjórn Origo hf. í mars 2017 og er formaður stjórnar.
Hjalti er framkvæmdastjóri hjá Marel og leiðir 230 starfsmanna hugbúnaðardeild. Hjalti stundaði nám í rafmagns- og tölvuverkfræði í HÍ 1995-1998 og lauk MBA námi frá MIT í Bandaríkjunum. Hjalti átti þátt í stofnun hugbúnaðarhússins Dímon árið 1998. Eftir MBA námið vann Hjalti í höfuðstöðvum Microsoft í 11 ár, og leiddi þar viðskiptaþróun fyrir gervigreind.
Hildur Dungal tók sæti í aðalstjórn Origo hf. í febrúar árið 2011 og er varaformaður stjórnar.
Hildur útskrifaðist með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún gegndi starfi forstjóra Útlendingastofnunar, starfaði um árabil hjá dómsmálaráðuneytinu en er nú lögfræðingur yfirstjórnar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Hildur hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja og er varamaður í stjórn Bankasýslunnar.
Ívar Kristjánsson tók sæti í aðalstjórn Origo hf. í mars 2016.
Ívar er framkvæmdastjóri 1939 Games, stjórnarformaður RVX og situr í stjórn Icelandic Gaming Industry (innan Samtaka iðnaðarins). Ívar stundaði nám í viðskiptafræði við HÍ og hefur lokið MBA gráðu frá HR. Hann er einn af stofnendum CCP hf. og starfaði þar í 17 ár og var framkvæmdastjóri CCP þegar EVE-Online kom út árið 2003, en var lengst af fjármálastjóri CCP.
Guðmundur Jóhann Jónsson tók sæti varamanns í stjórn Origo hf. 1999 og hefur gegnt hlutverki vara- og aðalmanns frá þeim tíma til dagsins í dag.
Guðmundur, sem er forstjóri tryggingafélagsins Varðar, útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Seattle University á árinu 1985 og lauk MBA prófi frá Edinborgarháskóla á árinu 2000. Hann hefur auk setu í stjórn Nýherja setið í stjórnum nokkurra annarra fyrirtækja. Hann situr í stjórn Viðskiptaráðs Íslands.
Svafa Grönfeldt tók sæti í aðalstjórn Origo hf. í mars 2019.
Svafa starfar sem Senior Advisor to the Dean Massachusetts Institute of Technology SA+P og er með PHD gráðu frá London School of Economics. Hún hefur starfað sem Executive Vice President Alvogen, rektor Háskólans í Reykjavík og sem aðstoðarforstjóri Actavis. Einnig er Svafa stjórnarmaður hjá Össuri og formaður stjórnar MITDesignX viðskiptahraðalsins við MIT háskóla.
Stjórn félagsins fylgir leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar voru út af Viðskiptaráði Íslands, OMX Kauphöll Íslands og Samtökum atvinnulífsins, nýjasta útgáfan dagsett í júní 2015.
Markmið leiðbeininganna eru m.a. að: